
heimildakvikmynd, kvikmyndaverk og fræðslu um líf og list Svavars úr ýmsum áttum. Hluti af sýningunni fjallar um uppruna Svavars sem tengist sögu Hafnar. Með verkefninu er markmiðið meðal annars að kynna Svavar fyrir gestum á litríkan, lifandi og skemmtilegan hátt.
Sýningin er unnin út frá meistaraverkefni Huldu Rósar í hagnýtri menningarmiðlun. Verkefnið fjallar meðal annars um það hvernig má nýta menningararf til miðlunar og uppbyggingar á Hornafirði. Fjallað er um uppruna Svavars og ár hans á Hornafirði en einnig hvernig hann tengdist svæðinu eftir að hann flutti burt. Hann var listamaður „úr ríki Vatnajökuls“ ekki síst vegna þess að einstök náttúrutilfinning hans birtist endurtekið í málverkinu, í viðtölum og umræðu um listamanninn. Það er

rétt eins og að í huganum hafi Svavar tekið með sér náttúrufegurðina á æskuslóðunum hvert sem hann fór. Það að Svavar hafi verið fæddur og uppalinn á Hornafirði, auk þess sem hann tengdist landslaginu tilfinningaböndum, skapar fjölmörg tækifæri í menningartengdri ferðaþjónustu. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurlands og atvinnu- og rannsóknasjóði Hornarfjarðarbæjar.
Sýningin verður í vinnustofu Guðrúnar Ingólfsdóttur (Gingó) í Miklagarði og á sama stað verður einnig sýning eftir Guðrúnu og sala á vörum hennar. Opið alla humarhátíðarhelgina.
No comments:
Post a Comment