Wednesday, June 15, 2011

Hornfirskur listamaður: Hlynur Pálmason (1984)

Hlynur Pálmason (f. 1984) hefur verið einn afkastamesti samtímalistamaður Hornafjarðar síðari ára. Hann er fæddur og uppalinn Hornfirðingur og hefur átt vinnustofu á Höfn um árabil. Þrátt fyrir að hafa búið í Kaupmannahöfn síðustu ár og sótt kvikmyndanám í Kaupmannahöfn síðan 2009, þá hefur hann unnið, kvikmyndað og sett upp sýningar á Höfn á sumrin samhliða náminu.

Hlynur er kvikmyndagerðarmaður, ljósmyndari og myndlistarmaður og hefur starfað á öllum þremur sviðunum síðustu ár. Hann hefur haldið fjölmargar málverka- og ljósmyndasýningar en hans helstu sýningar hafa verið settar upp á Höfn, eins og áður sagði í vinnustofu Hlyns á Graðalofti. Vinnustofan er staðsett niður við höfnina í þriggja hæða húsi í beinu framhaldi af Miklagarði (lengst til vinstri á gamalli mynd af húsinu hér til hliðar). Mikligarður og Graðaloft eru sögufrægar byggingar á Höfn en Mikligarður var verbúð, byggð á árunum 1918-1920.

Hlynur hefur haldið alls sex einkasýningar (ljósmynda- og myndlistarsýningar). Hlynur lýsir sýningunum sínum sem stúdíósýningum, þar sem hann opnar vinnustofuna sýna fyrir almenningi. Ekki er þó þar með öll sagan sögð, því sýningar hans hafa oftast verið vel fram settar og heildarmynd þeirra vel skipulögð (sjá grein um sýningu hans 2008 hér fyrir ofan). Sýningarnar sem hann hefur sett upp eru eftirfarandi: Ónefnd sýning (2007), Sjónræn dagbók, Graðalofti (2008), Við stólum á að muna eftir hitanum þegar það kemur frost (2008), Spor?, Café Túliníus (2009), Fyrsta kreppan mín, Graðalofti (2009) og Stúdíósýning, Graðalofti (2010).

Þá hefur Hlyni þrátt fyrir ungan aldur, getið sér gott orð á sviðum kvikmyndalistar og náð töluverðum árangri hérlendis sem og erlendis. Stuttmyndin "Post-it" var árið 2008 valin besta myndin á íslenskri hátíð "Ljósvakaljóð" og var í öðru sæti á stuttmyndahátíð Reykjavíkur sama ár. Stuttmyndin "Jóel" var sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim árið 2010, t.d. á virtri kvikmyndahátíð í Frakklandi, Spáni, Finnlandi, Þýskalandi (þar sem hann vann til verðlauna), Suður-Kóreu, Kanada, Bretlandi og Litháen.Í sumar stefnir Hlynur á að opna nýja sýningu á Höfn en þessi sýning verður einnig flutt til Reykjavíkur og Kaupmannahafnar. Sýningin mun nefnast "Hvítblinda" og er hljóð- og ljósmyndasýning. Fjallað verður frekar um sýninguna hér á síðunni þegar nær dregur en Hlynur stefnir á að opna hana á Humarhátíð á Höfn. Hér til hliðar má sjá vel valdar ljósmyndir frá fyrri myndlistarsýningum Hlyns í Graðalofti.




No comments:

Post a Comment

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...