Wednesday, May 4, 2011

Listamannaspjall við Gingó um sýninguna Vorið

Í tilefni þess að Gingó opnaði hér sýningu um páskana tók ég við hana stutt viðtal um sýninguna og starf hennar almennt. Á síðunni verður meira um listamannaspjall og er markmiðið að skapa hér umræðuvettvang um hornfirska listamenn, störf þeirra og tækifæri í heimabyggð.



Hvenær var sýningin opnuð og hversu lengi stóð hún yfir?
Sýningin hófst á föstudaginn langa 22. apríl og var opin í 3 daga 3 tíma í senn.

Hvernig voru viðtökurnar, komu margir á sýninguna?
Aðsóknin var framar vonum en 140 manns sáu hana. Það hefur alltaf verið góð aðsókn á sýningarnar mínar hér.

Hvert var þema sýningarinnar og af hverju kom sú hugmynd?
Sýningin hét Vorið og með því skírskota ég í verkin mín sem eru flest frekar myndræn. Vorið er svo góður tími þegar allt er að lifna við og breytast og litirnir að koma inn í náttúruna. Ég elska vorið í allri sinni mynd og því var það góður innblástur fyrir þessa sýningu.

Hvenær byrjaðir þú að vinna verkin fyrir sýninguna og hvað var þetta langt ferli frá hugmynd að opnun?
Ég hef verið að vinna að henni frá áramótum, sem sagt í 3-4 mánuði frá hugmynd til sýningar.

Af hverju valdir þú þetta rými fyrir sýninguna?
Ég valdi Miklagarð vegna þess að ég var að opna vinnustofu þar. Ég málaði rýmið í hólf og gólf og sá að sýningin væri bara flott þarna þótt ég væri ekki með fullkomna lýsingu. Sú lýsing sem ég var með kom síðan bara vel út að mínu mati svo að endanleg niðurstaða var sú að rýmið var mjög hentugt fyrir sýninguna.

Aðeins um þig, hvaða menntun hefur þú á sviðum myndlistar (eða almennt)?
Ég er stúdent frá FAS í félagsfræði og lauk líka námi á listnámsbraut í Tækniskólanum. Þar á eftir stundaði ég nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík og lauk þar námi á keramik kjörsviði með rennslu sem sérsvið. Þar lauk ég einnig námi í listmálun.

Af hverju ákvaðstu að snúa þér að myndlistinni og hvenær var það sem þú byrjaðir?
Það er nú erfitt að segja. Ég hef tvær sterkar hliðar, íþróttir og sköpun og þegar ég ákvað að hætta vinna við það fyrrnefnda þá ákvað ég að reyna mig í sköpun, þetta var árið 2007. Ég hafði ekki neinn tíma í það áður því ég vann svo langan vinnutíma. Núna vinn ég bara 6-8 tíma á dag og finnst ég hálfpartinn vera í fríi. Listsköpun kallar á öðruvísi vinnutíma þó svo að tarnirnar geti verið langar.

3. Hvaða framtíðarsýn hefur þú fyrir þig sem listakonu á Hornafirði?
Það er nú ekki gott að segja hver mín sýn er. Ég hef margar góðar hugmyndir í kollinum til að vinna úr næstu árin. Ég er núna að vinna við ákveðið verkefni sem ég held að geti hitt í mark en ég get ekki sagt hvað það er strax. Ég veit svo sem ekki hvað bíður handan við hornið og kannski sem betur fer, það er það sem gerir þetta svo spennandi. Ég hef einsett mér að vinna í núinu en ég er allavega á Hornafirði núna og hvað verður veit enginn.


Tuesday, May 3, 2011

Vorið

Sýningin Vorið

Í Miklagarði (stúkusalnum)

Höfn, 22.-24. apríl

Um páskahelgina var á Höfn opnuð sýningin Vorið, þar sem listakonan Gingó eða Guðrún Ingólfsdóttir, sýndi sex ný verk og eina innsetningu. Sýningin opnaði á föstudaginn langa í stúkusalnum svokallaða í Miklagarði en þar hýsir listakonan jafnframt vinnustofu sína. Sýningin samanstóð af blandaðri tækni þar sem mátti sjá klippiverk, keramik, leirverk, málverk, vírverk, textílverk, innsetningu og þátttökulist. Um 140 manns lögðu leið sína í Miklagarð og má því segja að sýningin hafi verið mjög vel sótt.


Guðrún hefur verið afkastamikil síðan hún byrjaði að vinna við myndlist, leirlist og hönnun. Fyrsta málverkasýningin hennar opnaði á Kaffi Horninu vorið 2007 en þar sýndi hún 95 akrýlmálverk. Síðan þá hefur hún bæði sett upp málverkasýningar og sýnt leirverk eða önnur verk við ýmis tækifæri. Það má segja að fyrsta einkasýning Guðrúnar þar sem hún notaðist við blandaða tækni myndlistar hafi verið í fyrra á sýningu í Kartöfluhúsinu sem bar heitið Draumsýn (ljóðaljós) og fékk góðar viðtökur. Vorið var svipuð þeirri sýningu á þann hátt að sýningarnar höfðu báðar ákveðið þema og sýndu tilraunamennsku með myndlistarmiðilinn, þó svo að sýningarnar tvær væru mjög ólíkar á annan hátt.

Þema sýningarinnar í Miklagarði var augljóslega vorið. Mikið var um bjarta liti og stemningin var í senn hugljúf og glaðleg. Guðrún hafði valið að hafa passlega lýsingu á sýningunni sem myndaði einnig yfirvegað andrúmsloft. Það sem vakti fyrst athygli mína var hversu trú listakonan var þemanu sem hún hafði valið sér. Jafnvel vírverkið Vefur sem var eftirlíking af kóngulóarvef með lítilli kónguló, varð til þess að minna áhorfandann á það að vorið og sumarið væri á næsta leyti. Þó svo að Vefur hafi verið ólíkt hinum verkunum átti það þannig fullkomlega heima í heildarþemanu.

Annað sem vakti athygli mína var verkið Fiðrildin sem var í senn klippiverk og í raun á vissan hátt þátttökuverk. Þar hafði Guðrún klippt yfir hundrað lítil fiðrildi úr IKEA-bækling og þau síðan límd á vegginn. Litrík fiðrildin mynduðu ákveðið mynstur á veggnum og mætti túlka þau sem tákn um frelsi, flæði og fegurð vorsins. Síðan var gestum boðið að telja fiðrildin og gat viðkomandi unnið leirverk eftir Guðrúnu ef hann hafði rétta tölu. Á þann hátt var verkið á vissan hátt þátttökulist en þátttökulist varð vinsæl rétt fyrir aldamótin síðustu víðsvegar í listheiminum. Í dag er þátttökulist mikið notuð til þess að fá fleiri gesti á sýningar og bæta afþreygingu við gildi þeirra. Á svipaðan hátt bætti verkið Fiðrildin heilmiklu við sýninguna og hefði hún að mínu mati ekki verið söm án þess.



Innsetningin á sýningunni var áhugaverð: Borð sem sett var á mitt gólf, með lítilli skál ofan á. Innsetningar eru oftast hugsaðar fyrir sérstakt rými, rými sem eykur gildi verksins eða rými sem verkið er háð. Þó að það hafi ekki endilega verið tilfellið með innsetningu Guðrúnar á sýningunni þá var verkið þrívíddarverk og hafði einnig þá eiginleika að vera þátttökuverk. Áhorfandinn gat fært skálina á borðinu, búið til nýtt munstur og leikið sér með útlit verksins. Innsetningin var að mínu mati fyrst og fremst fagurfræðislegs eðlis, sniðug hugmynd og útfærsla Guðrúnar hvernig má hugsanlega gera upp gamalt borð.
 Sýningin var ekki aðeins vönduð í uppsetningu heldur var hún einnig eins og ljúfur vorboði. Undirrituð byggir oft dóma sína á upplifun og tilfinningu fyrir sýningunni og fyrir þann þátt sýningarinnar fær sýningin fullt hús stiga. Markmiðið var augljóslega ekki að vera með pólitísk eða menningarleg skilaboð til áhorfandans og því verður sýningin ekki dæmd út frá því. Að mínu mati náði sýningin markmiði sínu, sem var að sýna með fjölbreyttri miðlun ákveðna vorstemningu. Þó að verkin hafi verið fá, var heildarmyndin vel heppnuð. Gaman verður að sjá fleiri sýningar á verkum Gingó í framtíðinni í þessu fallega og sögulega rými í Miklagarði.

Tenglar:

www.gingo.is

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...